Gagnrýnin á eftirlitsleysi með íslenskum fósturheimilum
Umræðan um fósturheimili sem hefur átt sér stað í samfélaginu síðastliðna tvo mánuði hefur leitt til þess að börn sem hafa dvalið á slíkum heimilum hafa gagnrýnt skort á eftirliti hjá barnaverndaryfirvöldum.
Þetta á bæði við um þá sem dvöldu á fósturheimilinu Bakkakoti á Suðurlandi, sem fréttaskýringaþátturinn Kveikur sagði frá í byrjun febrúar, og eins um fólk sem dvaldi á öðrum heimilum eins og Gauksstöðum í Garði.
Kona sem bjó á fósturheimilinu á Gauksstöðum sem unglingur segir að eitt af því sem henni svíði hvað mest sé að Barnaverndin í Reykjavík hlustaði ekki á kvartanir hennar. Hún segir líka að annað sem henni svíði sé að íbúar í Garðinum hafi ekki brugðist við þrátt fyrir að margir í nærsamfélaginu hafi vitað af því að á heimilinu hafi ríkt ógnarstjórn.
Móðir drengs sem bjó á Gauksstöðum segir sömu sögu um barnaverndina á Húsavík sem og barnaverndarstofu.
Eftirlit með fósturheimilum á Íslandi er eitt af því sem til stendur að skoða sérstaklega í fyrirhugaðri rannsóknarnefnd um fósturheimili, segir Páll Þórhallsson lögfræðingur í forsætisráðuneytinu.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Birt
22. apríl 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Þetta helst
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.