Þetta helst

Manngerðar eyjur kínverskra stjórnvalda

Leiðir ríkja heims til auka við völd sín og umsvif eru margar og fjölbreytilegar. Ein leið er auka við yfirráðasvæði sitt - færa út kvíarnar. En það getur verið erfitt og dýrt, kostað stríð, alþjóðaátök, mannfall og eyðileggingu. Sum ríki hafa því leitað nýrra og frumlegri leiða. Eins og Kína, sem hefur - undanfarin átta ár eða svo - bara búið til landsvæði þar sem eru engin. Reist hverja manngerða floteyna í Suður-Kínahafi á eftir annarri. Bætt um það bil þrettán ferkílómetrum við yfirráðasvæði sitt á síðustu árum, ófáum nágrönnum sínum til mikils ama. En hvers vegna? Hver er tilgangur þessara eyja? Undir hvað eru þær nýttar og hvaða áhrif hafa þær í alþjóðlegu samhengi? Við spyrjum Guðbjörgu Ríkeyju Thoroddsen Hauksdóttur, doktorsnema í stjórnmálafræði, út í kínversku gervieyjarnar í Þetta helst í dag.

Þetta helst er fréttaskýringaþáttur þar sem fjallað er um innlend og erlend fréttamál, menningu og daglegt líf. Fréttaskýringar, samtöl og umræður um það sem er efst á baugi.

Frumflutt

29. júní 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur sem varpar nýju ljósi á það sem efst er á baugi og stundum það sem verðskuldar meiri athygli.

Umsjón: Sunna Valgerðardóttir og Þóra Tómasdóttir

,