Þetta helst

Vendingar í máli Emmett Till

Það eru liðin 67 ár frá því Emmett Till, þá 14 ára gömlum, var rænt, hann pyntaður og loks myrtur á hrottafenginn hátt af tveimur mönnum. Tilefnið voru ásakanir ungrar konu um drengurinn hefði flautað á hana og hegðað sér á óviðeigandi hátt gagnvart henni, í verslun hennar og mannsins hennar. Atvikið átti sér stað í Suðurríkjunum. Á tímum sem einkenndust af kynþáttahatri, -ofbeldi og misskiptingu. Konan var hvít. Árásarmennirnir líka. Drengurinn svartur. Árásarmennirnir tveir voru sýknaðir af kviðdómi í málinu og enginn hefur verið látinn sæta refsingu vegna dauða unga drengsins. gæti þó hugsanlega dregið til tíðinda þar sem hópur sjálfboðaliða hafði uppi á gamalli handtökuskipun sem gæti skipt sköpum. Við könnuðum málið í Þetta helst.

Frumflutt

5. júlí 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur sem varpar nýju ljósi á það sem efst er á baugi og stundum það sem verðskuldar meiri athygli.

Umsjón: Sunna Valgerðardóttir og Þóra Tómasdóttir

Þættir

,