Þetta helst

Útlendingarnir sem máttu ekki vera hérna

Útlendingar verða á dagskrá í Þetta helst í dag. Eða reyndar þeir útlendingar sem voru sendir úr landi með leiguflugi til meginlandsins í síðustu viku. Þeir fimmtán útlendingar sem stjórnvöld handtóku, lyftu úr hjólastól, kipptu úr framhaldsskóla og settu suma í fangelsi, en eru á götunni í Grikklandi. Búið kalla ríkislögreglustjóra fyrir allsherjar- og menntamálanefnd og embættið á skila greinargerð til dómsmálaráðuneytisins um framkvæmdina. En það er alls ekkert víst þetta væri svona í umræðunni ef þetta hefði ekki náðst á filmu, og þetta náðist á filmu, þó starfsfólk ISAVIA hafi sannarlega reynt koma í veg fyrir það með öllum tiltækum ráðum. UNICEF, Biskup Íslands, Rauði krossinn, Þroskahjálp, Öryrkjabandalagið, Kennarasambandið, Sjálfsbjörg og Amnesty International eru meðal þeirra stofnana sem hafa fordæmt aðgerðirnar, en eftir stendur ráðamenn segja það einfaldlega verið fylgja lögum. Þó ekki alveg í lagi lögreglan hafi ekki bíl til umráða sem geri ráð fyrir fólki í hjólastólum. Þessi atburðarrás, sem dómsmálaráðherra segir reyndar eigi sér stað í hverri viku þó við vitum ekki af því, hófst á miðvikudag, 2. nóvember og Sunna Valgerðardóttir fer yfir hana í þætti dagsins.

Frumflutt

7. nóv. 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.

Þættir

,