Þetta helst

Morðin í Field's í Kaupmannahöfn

Þrjú eru látin og fjögur liggja alvarlega særð á sjúkrahúsi eftir ungur, danskur maður hóf skothríð með riffli í Fields-verslurnarmiðstöðinni frægu. Lögreglan telur manninn hafa verið einan verki, en viðbúnaðarstig í borginni hefur verið hækkað, viðburðum aflýst og fólk er beðið um hafa varann á. Tvö sem dóu voru einungis sautján ára gömul, þriðji var á sextugsaldri. Morðinginn birti óhugnanleg myndskeið á youtube daginn fyrir árásina og er sagður eiga sögu innan geðheilbrigðiskerfisins. Hann er leiddur fyrir dómara í dag og krefst ákæruvaldið gæsluvarðhalds yfir honum. Við förum yfir atburðarrásina í Þetta helst.

Frumflutt

4. júlí 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur sem varpar nýju ljósi á það sem efst er á baugi og stundum það sem verðskuldar meiri athygli.

Umsjón: Sunna Valgerðardóttir og Þóra Tómasdóttir

Þættir

,