Þetta helst

Ef stúkan er gul þá er það heimavöllur

Íþróttastarf Ungmennafélags Grindavíkur heldur áfram þótt það verði með breyttu sniði. Félagið hefur háð baráttu fyrir tilvist sinni í vetur en á í viðræðum við ríkið, sveitarfélög og önnur íþróttafélög um tryggja áframhaldandi starfsem í einhverri mynd. Meistaraflokkar félagsins í körfubolta og fótbolta eru á fullri ferð og Þetta helst leit við á leik karlaliðsins í körfubolta í Smáranum í vikunni.

Verkefni framkvæmdstjóra félagsins í vetur hafa verið ólík því sem gengur og gerist hjá íþróttafélögum. Enginn heimavöllur, ekkert íþróttahús, en stuðningurinn úr stúkunni er engu líkur og Grindvíkingar sækja leiki ekki síður til hittast og koma saman. Ef stúkan er gul, þá er það heimavöllur, segir stuðningsmaður Grindavíkur. Íþróttastarfið er hjartað í bænum og því þarf halda gangandi.

Rætt er við framkvæmdastjóra UMFG Þorleif Ólafsson, Huldu Björk Ólafsdóttur íþróttakonu ársins í Grindavík og stuðningsmenn félagsins.

Frumflutt

10. maí 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur sem varpar nýju ljósi á það sem efst er á baugi og stundum það sem verðskuldar meiri athygli.

Þættir

,