Þetta helst

30 milljóna króna verktakagreiðslur til samlagsfélags eiginmanns heilbrigðisráðherra

Samlagsfélag Torfa Fjalars Jónasson hjartalæknis og Ölmu Möller, þingmanns Samfylkingarinnar og núverandi heilbrigðisráðherra, fékk greiddar tæplega 30 milljónir króna í vertakagreiðslur fyrir svokölluð ferliverk á Sjúkrahúsinu á Akureyri á árunum 2023 til 2025.

Miklar deilur hafa geisað við Sjúkrahúsið á Akureyri síðastliðna mánuði út af þessum vertakasamningum. Framkvæmdastjórn sjúkrahúsins sagði þeim fyrst upp en endurskoðaði svo þá ákvörðun vegna óánægju lækna.

Alma Möller hefur tengst þessari umræðu bæði sem heilbrigðisráðherra og hagsmunaðili í umræddu samfélagsfélagi. Vegna hagsmunatengsla sagði hún sig frá ákvörðunum um samningana og framtíð þeirra. Þetta var hins vegar eftir deilur höfðu blossað upp vegna þeirra og hefur Ingibjörg Isaaksen, þingkona Framsóknarflokksins, gagnrýnt ráðherrann fyrir hafa ekki sagt sig fyrr frá málinu.

Inn í þessar deilur tvinnast svo skyndileg starfslok forstjóra sjúkrahússins sem ýjað hefur verið opinberlega tengist deilunum um þessa verktakasamninga.

Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Birt

10. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Þetta helst

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Þættir

,