Þetta helst

Raunir Shamimu Begum

Lundúnastúlkan Shamima Begum var aðeins fimmtán ára gömul þegar hún strauk heiman og gekk til liðs við Íslamska ríkið í Sýrlandi ásamt tveimur skólasystrum sínum á svipuðu reki. Lífið í Íslamska ríkinu reyndist ekki vera útópía sem hún hafði búist við. Hún eignaðist þrjú börn með hollenskum vígamanni og missti þau öll ung og hefur hafist við í flóttamannabúðum í norðaustanverðu Sýrlandi undanfarin þrjú ár. Hún hefur lýst því yfir hún vilji snúa heim til Bretlands en það er henni ómögulegt þar sem hún hefur verið svipt breskum ríkisborgararétti fyrir tilheyra hryðjuverkasamtökum. Árum saman hefur Begum barist fyrir ríkisborgararétt sinn aftur, og nýlega dró til tíðinda í máli hennar. Þar kemur gagnnjósnari við sögu. Þetta helst rekur sögu Begum.

Frumflutt

7. sept. 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur sem varpar nýju ljósi á það sem efst er á baugi og stundum það sem verðskuldar meiri athygli.

Umsjón: Sunna Valgerðardóttir og Þóra Tómasdóttir

Þættir

,