Þetta helst

Lygileg Íslendingasaga elstu trúarbragða heims

Einar Ágústsson var í síðustu viku dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir fjársvik. Bróðir hans, Ágúst Arnar, er leiðtogi trúfélags á Íslandi, trúfélags sem er byggt á einni elstu trú mannkyns: Zuism. Saga íslensku Zúistanna er ekki dæmisaga, þó hún á köflum hálf-lygileg. Hún er vissulega dæmisaga sem slík, um það hvernig á ekki gera hlutina, eða hvernig á einmitt gera þá, það fer allt eftir viðhorfinu. Í dag eru um 600 skráðir Zúistar á Íslandi, en þeir voru rúmlega 3000 á blómaskeiðinu, sem reyndist þó byggt á sandi. Sunna Valgerðardóttir fjallar um Kickstarter-bræðurna Einar og Ágúst, baráttu Zúistastjórnarinnar við kerfið og sóknargjöldin sem átti endurgreiða.

Frumflutt

31. okt. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur sem varpar nýju ljósi á það sem efst er á baugi og stundum það sem verðskuldar meiri athygli.

Umsjón: Sunna Valgerðardóttir og Þóra Tómasdóttir

Þættir

,