Þetta helst

Breytt heimsmynd eftir heimsfaraldur

Magnús Geir Eyjólfsson fjallar um breytta heimsmynd eftir Covid-19 faraldurinn í Þetta helst í dag. Í upphafi árs glitti í endalokin á Covid-19 faraldrinum og sáu fjármálaráðherrar heimsins í hillingum varpa fram háum hagvaxtartölum eftir botn síðustu ára. En svo hófst innrás Rússa í Úkraínu og segja Pútín hafi ekki eingöngu varpað sprengju á úkraínskar borgir heldur einnig sprengjum á heimshagkerfið. Í stað betri tíðar með blómum í haga róa fjármálaráðherrar heims lífróður í baráttu við síhækkandi hrávöruverð, áður óséða verðbólgu og versnandi lífskjör. Rétt eins og faraldurinn á þetta heita tímabundið ástand en eru málsmetandi menn farnir tala um áhrif þessara heimssögulegu viðburða verði varanleg. Magnús Geir ræðir við Björn Berg Gunnarsson, hagfræðing. Pistillinn var upphaflega fluttur í fréttaþættinum Heimskviðum, laugardaginn 21. maí.

Þetta helst er fréttaskýringaþáttur þar sem fjallað er um innlend og erlend fréttamál, menningu, íþróttir og daglegt líf. Fréttaskýringar, samtöl og umræður um það sem er efst á baugi.

Frumflutt

23. maí 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur sem varpar nýju ljósi á það sem efst er á baugi og stundum það sem verðskuldar meiri athygli.

Umsjón: Sunna Valgerðardóttir og Þóra Tómasdóttir

Þættir

,