Þetta helst

Hvernig á að stöðva stríðið? Fyrri hluti

Gerir Ísland nógu mikið til þrýsta á stöðvun stríðsins milli Ísraels og Palestínu? Höfum við úrræði til hjálpa til í aðstæðum sem sagðar eru eitt versta mannúðarástand sögunnar? Hvað geta íslensk stjórnvöld gert betur og hvað geta almennir borgarar gert? Breytir það einhverju styrkja mannúðarsamtök? Er það kannski bara leið til kaupa okkur friðþægingu svo okkur líði ögn betur yfir hryllilegum fréttum af morðum á þúsundum saklausra borgara?

Við leitum svara við þessum spurningum hjá þeim Láru Jónasdóttur og Kára Hólmari Ragnarssyni. Lára er hokin af reynslu af mannúðarstarfi í Mið-Austurlöndum og hefur starfað fyrir ýmis samtök svo sem Lækna án landamæra. Hún segir frá því sem hún telur gagnlegt gera til hafa áhrif á deiluna.

Kári er lektor í þjóðarrétti við lagadeild Háskóla Íslands. Hann veit hvaða reglur gilda í stríði og þekkir kerfið sem hannað er af alþjóðasamfélaginu til bregðast við slíku ástandi. Umsjón: Þóra Tómasdóttir.

Frumflutt

9. nóv. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur sem varpar nýju ljósi á það sem efst er á baugi og stundum það sem verðskuldar meiri athygli.

Umsjón: Sunna Valgerðardóttir og Þóra Tómasdóttir

Þættir

,