Þetta helst

Bifrastarsagan: Hitafundur og 2.3 milljarða afskriftir

Þremenningarnir sem voru hreinsaðir af meintum brotum á siðareglum Háskólans á Bifröst í síðustu viku hafa hótað stefna skólanum fyrir dóm. Þau sendu háskólanum á Bifröst bréf þann 8. febrúar þar sem þau krefjast þess upplýsingar um nafnlausu ábendinguna sem siðanefndarmálið gegn þeim byggir á.

Miklar deilur hafa geisað í háskólanum á Bifröst síðastliðinn mánuð. Hitafundur var haldinn um stöðu skólans á skrifstofu hans í Borgartúni á fimmtudaginn. Enn er eru stríðandi fylkingar í skólanum þó Margrét Jónsdóttir Njarðvík hafi sagt starfi sínu lausu í byrjun vikunnar.

Háskólinn á Bifröst hefur staðið í ströngu síðastliðin ár. Fjármögnunarlíkani skólans var breytt og kemur nær allur peningurinn í rekstrinum frá ríkinu núna.

Þá hefur skólinn átt í erfiðleikum vegna hárra skulda við ríkisstofnunina HMS, arftaka Íbúðalánasjóðs. Þessar skuldir voru um 3 milljarðar króna. Skuldirnar voru mestu leyti afskrifaðar en Bifröst greiddi hluta þeirra til baka með láni frá Arion banka.

Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Birt

12. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Þetta helst

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Þættir

,