Þetta helst

Þar sem pappírsslóðin endar: Börn voru vistuð í Bakkakoti í trássi við lög 2005

Börn voru vistuð á fósturheimilinu Bakkakoti í Landeyjum árið 2005 án þess eigendur Bakkakots hefðu haft leyfi til þess frá sveitarfélaginu taka sér fósturbörn. Þetta var brot á nýjum barnaverndarlögum sem samþykkt voru árið 2004.

Þegar þetta komst upp bannaði félagsþjónustan í Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu eiganda Bakkakots, Þóru Bernódussdóttur, taka sér fleiri fósturbörn.

Þessar upplýsingar koma fram í gögnum um starfsemi Bakkakots frá Þjóðskjalasafninu sem fréttastofa fékk frá safninu. Í gögnunum er finna síðustu fyrirliggjandi samskipti sveitarfélagsins við Þóru í Bakkakoti um fósturheimilið.

Rætt er við lögmann Bakkakotsmannanna, Bjarka Heiðar Bjarnason um þessi gögn og stöðuna á Bakkakotsmálinu í dag eftir umfjöllun fréttaskýringaþáttarins Kveiks um ofbeldið á heimilinu í febrúar.

Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Birt

2. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Þetta helst

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Þættir

,