Þetta helst

Er verðlaunafé ógn við Ólympíuandann?

Fyrir hvert Ólympíugull í frjálsum íþróttum í París í sumar ætlar alþjóða frjálsíþróttasambandið greiða sem nemur sjö milljónum króna í verðlaunafé. Þetta verður í fyrsta sinn sem íþróttafólk fær greitt fyrir verðlaun á Ólympíuleikum. Ákvörðunin hefur verið harðlega gagnrýnd, meðal annars af Alþjóða Ólympíusambandinu og ðrum alþjóðlegum íþróttasamböndum.

Aðeins verður greitt fyrir gullverðlaun, og aðeins í frjálsum íþróttum.

Alþjóða frjálsíþróttasambandið er eina íþróttasambandið sem hefur tekið ákvörðun um veita verðlaunafé á leikunum. Hvorki Alþjóða Ólympíusambandið önnur alþjóðleg íþróttasambönd sem taka þátt í leikunum voru með í ráðum.

Sebastian Coe, formaður alþjóða frjálsíþróttasambandsins, hefur þurft verja þessa ákvörðun. Hann segir peningaverðlaunin séu til sýna afreksfólkinu þeirra framlag til leikanna skipti máli, þeirra hlutverk í tryggja velgengni Ólympíuleikanna mikils metið. Það íþróttafólkið sem trekki að, geri leikana því sem þeir eru, og því skyldi það ekki hlutdeild í tekjunum sem Ólympíuleikarnir skapa.

Verðlaunafé tíðkast á mörgum íþróttamótum, en í 128 ára sögu nútíma Ólympíuleika hafa aldrei áður verið veitt peningaverðlaun.

Rætt er við Hafrúnu Kristjánsdóttur íþróttasálfræðing og Þorkel Gunnar Sigurbjörnsson íþróttafréttamann.

Frumflutt

16. maí 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.

Þættir

,