Þetta helst

Hver er nýjasti húsráðandi í Downingsstræti 10?

Mary Elizabeth Truss verður forsætisráðherra Bretlands í dag. Truss er þingmaður fyrir Suðvestur Norfolk, hún er utanríkisráðherra, ráðherra kvenna og jafnréttis. Leiðtogi Íhaldsflokksins. Þetta er sumsé lýsingin á Twitterreikningnum hennar. Hún ætlar leggja fram efnahagsáætlun sem á taka á verðbólgu, yfirvofandi efnahagslægð og síversnanadi efnahag almennings. Leiðtogi stjórnarandstöðunnar sakar hana um vera ekki í tengslum við raunveruleikann og ekki standa með hinum vinnandi stéttum. Truss sigraði Ris­hi Sunak, fyrr­ver­andi fjár­málaráðherra Bret­lands, í atkvæðagreiðslu um leiðtogasætið og hlaut hún 57% greiddra atkvæða. Breskir veðbankar spáðu Truss á sunnudag 97 prósenta líkum á sigri og það varð svo raunin í gær. In Liz we Truss, LT - Low Tax, Liz for LEader. Þetta eru dæmi um orðaleikina á skiltum stuðningsmanna Liz, sem eru þó ekki eins skemmtilegir á íslensku. Við treystum Liz, lægri skattar og Liz í leiðtogann. Truss boðar harðan hægri boðskap. Hún ætlar lækka skatta með lánsfé. Liz Truss er á dagskrá Þetta helst í dag.

Frumflutt

6. sept. 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur sem varpar nýju ljósi á það sem efst er á baugi og stundum það sem verðskuldar meiri athygli.

Umsjón: Sunna Valgerðardóttir og Þóra Tómasdóttir

Þættir

,