Baksaga Blikastaðalandsins í einu ólögmætu einkavæðingunni
Uppbygging á Blikastaðalandinu svokallaða sem er í eigu Arion banka er eitt af stóru málunum sem er til umræðu í Mosfellsbæ fyrir komandi sveitastjórnarkosningar. Þetta er 98 hektara óbyggt landsvæði sem liggur á milli Reykjavíkur og byggðarinnar í Mosfellsbæ.
Um er að ræða eitt stærsta, ef ekki stærsta, óbyggða byggingarland á Íslandi í dag eins og fjármálagreinandinn Alexander Hjálmarsson hjá ráðgjafafyrirtækinu Akki orðaði það í fyrra. Mosfellsbær hefur nú samþykkt fyrsta áfanga deiliskipulags svæðisins og kannar nú hvort selja eigi landið í heild sinni eða skrá það á markað. Til stendur að byggja 3500 til 3700 íbúðir á þessu landsvæði.
Rætt er við Þóru Hjaltested, settan bæjarstjóra í Mosfellssveit, um þessa uppbyggingu og fjallað um baksögu Blikastaðalandsins.
Þetta land var lykilatriði í dómsmáli um einkavæðingu Íslenskra aðalvertaka sem endaði með því að framkvæmd íslenska ríkisins á útboði fyrirtækisins var dæmd ólögmæt. Íslenska ríkið seldi Íslenska aðalvertaka á undirverði sem aðallega fólst í því að Blikastaðalandið var verðmetið á um 1/5 hluta af raunvirði í einkavæðingunni.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Birt
13. maí 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Þetta helst
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.