Þetta helst

Samherjar á sextugsaldri læsa saman hornum í formannsslag

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, loftslags- og orkumálaráðherra Sjálfstæðisflokksins hefur skorað formanninn Bjarna Benediktsson á hólm. Guðlaugur vill verða taka við keflinu. Landsfundur Sjálfstæðisflokksins fer fram um næstu helgi, hefst föstudaginn 4. nóvember, og kosningin verður á sunnudag. Þetta er fyrsti landsfundur flokksins síðan fyrir faraldurinn. Guðlaugur Þór smalaði húsfylli í Valhöll í gær þar sem stuðningsmenn hans hlýddu á framboðsræðuna og það er ljóst það eru spennandi kosningar framundan. Sunna Valgerðardóttir sló á þráðinn til stjórnmálaprófessors í þættinum í dag, Ólafs Þ. Harðarsonar, og fékk hans vangaveltur um hvað fara gerast í flokknum. Ólafur efast um formannsskipti í flokknum ein og sér bæti sérstaklega við fylgi í næstu kosninum, sérstaklega í ljósi þess það er erfitt sjá einhvern stóran málefnamun á milli Guðlaugs og Bjarna. Þetta snýst meira um persónur og leikendur. Þá fer ásýnd flokksins eftir svona slag alveg eftir því hvernig menn ganga frá borði eftir hafa tekist á.

Frumflutt

31. okt. 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur sem varpar nýju ljósi á það sem efst er á baugi og stundum það sem verðskuldar meiri athygli.

Umsjón: Sunna Valgerðardóttir og Þóra Tómasdóttir

Þættir

,