Stjórnendur atNorth hagnast ævintýralega á sölu gagnaverafyrirtækisins
Íslenska gagnverafyrirtækið atNorth hefur verið selt fyrir 485 milljarða króna líkt. Þetta er langstærsta salan á íslensku gagnaverafyrirtæki hingað til.
Fyrirtækið var í eigu svissneska sjóðsstýringafyrirtækisins Partners Group að 95 prósent leyti og hópur stjórnenda atNorth átti 5 prósenta hluta. Stjórnendurnir skipta með sér rúmlega 24 milljörðum króna af söluverðinu að frádregnum kostnaði þeirra við kaup á hlutabréfunum á sínum tíima og skuldsetningu vegna þeirra.
Á bak við eignarhald svissneska fyrirtækisins eru hins vegar fjárfestar sem hafa fjárfest í sjóðum þess en ekki liggur fyrir hverjir þeir eru fyrir utan einn: Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins.
Fjallað er um söluna á atNorth og mikilvægi uppgangs gervigreindar við verðmat fyrirtækisins. Fyrirtækið er nú selt á 10 sinnum hærra en verði en fyrir fjórum árum síðan.
Rætt er forstjóra atNorth Eyjólf Magnúson Kristinsson og Hlöðver Árnason hjá upplýsingatæknifyrirtækinu Apró.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Birt
6. mars 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Þetta helst
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.