Þetta helst

Leitin að kaupverði Sóltúns

Í lok nóvember í fyrra samþykkti embætti Skattsins heimila eigendum fyrirtækisins Öldungs hf., sem er móðurfélag hjúkrunarheimilisins Sóltúns, lækka hlutafé þess og greiða tæplega 1.2 milljarða króna út til hluthafanna. Hjúkrunarheimilið er nær alfarið fjármagnað af íslenska ríkinu.

Hjúkrunarheimilið Sóltún og rekstrarfélag þess Öldungur hf. voru til umfjöllunar í Þetta helst í gær vegna rannsóknar sem stendur yfir sem byggir á kæru frá fyrrverandi eiganda hjúkrunarheimilisins. Hann heitir Jóhann Óli Guðmundsson og kærði hann tvo aðaleigendur Sóltúns til lögreglunnar í ársbyrjun vegna meintra vanefnda á meintum kaupsamningi árið 2009.

En hvaða máli skiptir útgreiðsla eigenda Sóltúns á hlutafé upp á tæpar 1200 milljónir króna í þessu samhengi? Eitt af því sem kemur fram í þessari kæru sem er til meðferðar hjá lögreglunni er eigendur Sóltúns hafi hagnast ævintýralega á rekstri þess á sama tíma og fyrri eigandi telur sig hafa verið hlunnfarinn í viðskiptunum með hjúkrunarheimilið.

Þessi útgreiðsla upp á 1,2 milljarða króna út úr Öldungi í fyrra bætist við 2 milljarða króna greiðslu til hluthafa Öldungs árið 2021. Samtals nema þessar tvær greiðslur út úr Öldungi til hluthafanna því minnsta kosti samtals tæplega 3.2 milljörðum króna.

Eitt af því sem Jóhann Óli segir í kærunni er núverandi eigendur Sóltúns hafi ekki greitt neitt fyrir hjúkrunarheimilið og ekki staðið við samninga við hann. Hann segir í kærunni þetta skjóti skökku við þar sem fyrtækið svo arðbært.

Tekið skal fram lögmaður annars eigenda Sóltúns segir kæruna vera tilhæfulausa og vonast til þess hún verði felld niður sem fyrst.

Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Birt

30. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Þetta helst

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Þættir

,