Þetta helst

Mannskæður jarðskjálfti í Afganistan

Minnst 1.150 létust og 1.500 slösuðust þegar jarðskjálfti, um sex stærð, reið yfir suðausturhluta Afganistans aðfaranótt miðvikudagsins. Jarðskjálftar eru ekki óalgengir í Afganistan en þessi er mannskæðasti í tvo áratugi. Þar með skall enn eitt stóráfallið á afganskan almenning, það síðasta af fjölmörgum sem dunið hafa yfir síðan stjórn Talíbana tók við völdum í landinu í fyrra. Katrín fer yfir stöðuna, skjálftann, afleiðingarnar og eftirmálin í Þetta helst í dag.

Þetta helst er fréttaskýringaþáttur þar sem fjallað er um innlend og erlend fréttamál, menningu og daglegt líf. Fréttaskýringar, samtöl og umræður um það sem er efst á baugi.

Frumflutt

27. júní 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.

Þættir

,