Þetta helst

Dramadrottningin í Dyngjufjöllum rumskar

Askja er vöknuð af værum blundi, segja vísindamenn. Hún náði ekki alveg hundrað árum Þyrnirósarinnar, en nokkuð nálægt því. Sextíu ár eru frá síðasta gosi í Öskju, en næstum því 150 ár eru frá því hún var með svakaleg læti. Land hefur risið um 35 sentímetra við Öskju á síðasta ári, sem er alveg slatti, og vísindamenn segja þessi þróun bendi til þess kvika safnast saman undir henni. Veðurstofa Íslands segir rishraðann vera óvenjumikinn miðað við sambærileg eldjöll í heiminum. Ef það gýs er búist við aðdragandinn verði skýr með aukinni skjálftavirkni. Fyrirvarinn gæti verið stuttur, jafnvel aðeins nokkrar klukkustundir. Þetta helst kíkti ofan í Öskju.

Frumflutt

28. júlí 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur sem varpar nýju ljósi á það sem efst er á baugi og stundum það sem verðskuldar meiri athygli.

Umsjón: Sunna Valgerðardóttir og Þóra Tómasdóttir

Þættir

,