Þetta helst

Konur í íslenskum fangelsum

Tíu konur afplána dóma í fangelsinu á Hólmsheiði. Hlutfall kvenna í fangelsi hefur farið hækkandi undanfarinn áratug og hefur verið á bilinu átta prósent til rúmlega ellefu. Það var í kring um fimm prósent fyrir um tíu árum síðan. Samkvæmt nýjum tölum frá Fangelsismálastofnun eru konurnar sem afplána dóma á aldrinum 23 til 62 ára. Dómarnir sem konurnar hlutu eru misþungir, allt frá níu mánaða fangelsisvist og upp í 16 ár. Fjórar eru íslenskar og sex erlendar. Auk þeirra sátu í vikunni fjórar konur í gæsluvarðhaldi, allt útlenskar.

Umboðsmaður Alþingis segir í nýrri skýrslu mögulega tilefni til taka ólíka stöðu karla og kvenna í fangelsum landsins til skoðunar og veltir upp þeirri spurningum hvort það sanngjarnt betri úrræði, eins og Kvíabryggja, séu einungis í boði fyrir karla. Fangelsismálastjóri segir skorta úrræði fyrir konur. Viðamikil íslensk rannsókn síðan í fyrra varpar skýru ljósi á aðstæður kvenna í fangelsum og segja rannsakendur konum hafi ekki verið gefinn nægilegur gaumur af yfirvöldum. Þetta helst fjallaði um konur í fangelsum í dag.

Frumflutt

8. sept. 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur sem varpar nýju ljósi á það sem efst er á baugi og stundum það sem verðskuldar meiri athygli.

Umsjón: Sunna Valgerðardóttir og Þóra Tómasdóttir

Þættir

,