Þetta helst

Byrjun baráttunnar um Bessastaði

Þetta verður mikið kosningaár um allan heim. Það verður kosið til þings eða forseta í rosalega mörgum löndum, 65 nánar tiltekið, þriðjungi allra ríkja heimsins. sjálfsögðu látum við Íslendingar ekki okkar eftir liggja þar - við kjósum okkur forseta. Og það verður nýr forseti því fjölskyldan á Bessastöðum ætlar flytja sig um set eftir átta ára búsetu þar. Sagnfræðingurinn Guðni Th. Jóhannesson tilkynnti í áramótaávarpi sínu hann hygðist róa á önnur, eða gömul, mið, segja skilið við forsetaembættið og sinna fræðastörfum á ný. Og það leið ekki langur tími frá þeim fregnum sætið yrði laust, þar til fyrstu vonbiðlarnir - frambjóðendurnir, létu á sér kræla. Það hefur nefnilega komið í ljós embætti forseta Íslands er starf sem nokkuð margir telja eftirsóknarvert - og þau eigi möguleika á landa því. Sunna Valgerðardóttir fer yfir fyrstu lotu baráttunnar um Bessastaði í þætti dagsins.

Frumflutt

5. jan. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur sem varpar nýju ljósi á það sem efst er á baugi og stundum það sem verðskuldar meiri athygli.

Umsjón: Sunna Valgerðardóttir og Þóra Tómasdóttir

Þættir

,