Þetta helst

Kynlíf íslenskra ungmenna

Þriðjungi færri fimmtán ára stúlkur stunda kynlíf en í upphafi aldar hér á landi. Þetta leiða niðurstöður alþjóðlegrar rannsóknar á heilsu og lífskjörum skólabarna í ljós. Rannsóknin hefur verið gerð hér á landi á fjögurra ára fresti síðan 2006, með tilstyrk Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar. Rannsóknin nær til fjölda landa í Evrópu og Norður Ameríku. Spurt er út í alls konar þætti í lífum ungs fólks, eins og tengsl þeirra við foreldra og vini, mataræði, hreyfingu, tómstundarstarf og kynhegðun. Tæp 25 prósent stúlkna hér stunda kynlíf, en hlutfallið var 36 prósent árið 2006. 27 prósent stráka stunda kynlíf í 10. bekk, en þeir voru 29 prósent árið 2006. Hlutfall stelpna sem stunda ungar kynlíf hefur lækkað um þriðjung en hlutfall strákanna aðeins lítillega. Aðeins 18 prósent íslenskra tíundu bekkinga notuðu smokk við síðustu samfarir. En hvað þýðir þetta? Hvað útskýrir þessa þróun? Og hvernig stöndum við hér á landi í þessum málum samanborið við aðra þátttakendur í könnuninni í Evrópu og Norður-Ameríku? Í Þetta helst ræðir Katrín Ásmundsdóttir við Ársæl Arnarsson, prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og faglegan stjórnanda Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar, núna í lok mars, um niðurstöðurnar.

Frumflutt

19. júlí 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur sem varpar nýju ljósi á það sem efst er á baugi og stundum það sem verðskuldar meiri athygli.

Umsjón: Sunna Valgerðardóttir og Þóra Tómasdóttir

Þættir

,