Þetta helst

Síkvik jörð Reykjanesskagans í gegn um tíðina

Jörð skelfur á Reykjanesskaganum. Þúsundir jarðskjálfta mælast á hverjum sólarhring, langflestir meinlausir þó, en nokkrir vel snarpir. Myndir hafa dottið af veggjum, dósir úr hillum, börn vakna af værum blundi og kaffivélasvæðin eru aftur farin einkennast af nokkuð einhæfum spurningum eins og fannstu skjálftann, eða vaknaðirðu í nótt. Og er það vel. Fólk hefur lýst hrinunni í nótt sem þeirri verstu sem það hafi upplifað og heyra mátti mörgum er brugðið - enda margir skjálftarnir harðir og snarpir. En við erum fljót gleyma. Í Þetta helst í dag verður aðeins litið til sögunnar á Reykjanesskaganum, kíkt á gamla heimildarmynd um jarðfræðina á svæðinu og rifjað upp skjálftana snörpu árin 1929 og 1968, sem urðu nálægt Brennisteinsfjöllum austan Kleifarvatns. Þeir gerðu nefninlega aðeins meira en búa til umræðuefni við kaffivélarnar í sumargúrkunni og þrykkja myndum af veggjum.

Frumflutt

2. ágúst 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur sem varpar nýju ljósi á það sem efst er á baugi og stundum það sem verðskuldar meiri athygli.

Umsjón: Sunna Valgerðardóttir og Þóra Tómasdóttir

Þættir

,