Þetta helst

Vafasöm hegðun vararíkissaksóknara

Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari er enn og aftur búinn koma sér í klandur vegna hegðunar sinnar á samfélagsmiðlum. síðast fullyrti hann hælisleitendur ljúgi til um kynhneigð sína til vera á Íslandi. Hver lýgur sér ekki til bjargar? spurði vararíkissaksóknararinn. Hann spurði reyndar líka hvort það væri skortur á hommum á Íslandi. Uppi varð fótur og fit, eðlilega, og dómsmálaráðherra sagði meira segja ummælin hafi slegið sig illa. Samtökin 78 kærðu Helga Magnús til lögreglu fyrir ummælin, formaður Viðreisnar vill dómsmálaráðherra beiti hann agaviðurlögum, samfélagsmiðlarnir fóru á hliðina og ríkissaksóknari er skoða málið. Enn og aftur. Því þetta er sannarlega ekki í fyrsta sinn sem embættismaðurinn segir eða gerir eitthvað sem slær fólk illa. Fregnirnar af vafasamri hegðun hans aftur til ársins 2011, þegar hann heyrðist fara afskaplega ljótum orðum um saksóknara efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra, hann hefur gert lítið úr réttindum kvenna til þungunarrofs, lækað vafasamar færslur á samfélagsmiðlum - svo einhver dæmi séu tekin. Sunna Valgerðardóttir skoðaði skoðanir og ummæli vararíkissaksóknara Íslands í Þetta helst.

Frumflutt

27. júlí 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur sem varpar nýju ljósi á það sem efst er á baugi og stundum það sem verðskuldar meiri athygli.

Umsjón: Sunna Valgerðardóttir og Þóra Tómasdóttir

,