Þetta helst

Fyrstu tólf tímarnir í lífi yngsta og stærsta eldgossins

Klukkan rúmlega níu í gærkvöldi hófst öflug skjálftahrina við Sundhnúkagíga. Þetta gerðist allt svolítið skyndilega, en svo virðist sem fáir hafi kippt sér mikið upp við fregnirnar á þeim rúma klukkutíma sem það tók frá því hrinan byrjaði þar til jörðin við Sundhnúkagíga rifnaði og hleypti upp alveg gífurlegu magni af kviku sem var búin krauma undir yfirborðinu í langan, langan tíma. Þetta var hröð atburðarás sem leit í fyrstu alls ekki vel út, en eftir því sem líða tók á nóttina og morguninn sáum við þetta stóra eldgos sem gaus upp úr rúmlega fjögurra kílómetra langri sprungu, virðist ekki ætla verða það skrímsli sem fólk óttaðist í fyrstu.

Frumflutt

19. des. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur sem varpar nýju ljósi á það sem efst er á baugi og stundum það sem verðskuldar meiri athygli.

Umsjón: Sunna Valgerðardóttir og Þóra Tómasdóttir

Þættir

,