Þetta helst

Hvað þýðir yfirlýsing um neyðarástand í loftslagsmálum?

Það ríkir einhvers konar neyðarástand í loftslagsmálum, um það erum við flest sammála um. Loftslagsbreytingar eru farnar bíta. Hitabylgjur, flóð, dauði heilu tegundanna, skógareldar, hungursneið og uppskerubrestir eru farin verða nánast daglegur fréttamatur - út af loftslagsbreytingum. Við erum á góðri leið með eyðileggja heimili okkar og við höfum líka vitað það í langan tíma. Sameinuðu þjóðirnar og Evrópusambandið eru á þessari skoðun og allir eru reyna bregðast við. 39 lönd hafa þegar formlega lýst yfir neyðarástandi vegna loftslagsmála. Evrópuþingið hefur gert það sömuleiðis og Evrópusambandið hálfpartinn líka. En ekki Ísland. Af hverju ætli það sé? Og þau eru mörg ósátt við það - þá kannski sérstaklega íslenskir náttúruverndarsinnar og þeirra á meðal er Björk, sem er ekki bara ósátt heldur segir hún forsætisráðherra hafi svikið samkomulag þeirra á milli með því lýsa ekki yfir neyðarástandi. En hvað þýðir það eiginlega lýsa yfir neyðarástandi í loftslagsmálum? Þetta helst reyndi svara því.

Frumflutt

23. ágúst 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur sem varpar nýju ljósi á það sem efst er á baugi og stundum það sem verðskuldar meiri athygli.

Umsjón: Sunna Valgerðardóttir og Þóra Tómasdóttir

Þættir

,