Rannsóknin á lögreglustjóranum eftir þorrablótið
Þorrablót Flateyringa komst í fréttir síðasta vetur. Vikuna eftir það fluttu fjölmiðlar fréttir af því að kvartað hefði verið undan hegðun Helga Jenssonar, lögreglustjóra á Vestfjörðum,…
Í dag beinum við sjónum okkar að atvinnuleysi hér á landi sem hefur verið nokkuð til umfjöllunar síðustu vikur og mánuði - enda ekki verið meira frá því í faraldrinum - og ef hann er undanskilinn hefur það ekki mælst meira frá 2013. Rætt er við Arnald Sölva Kristjánsson, sérfræðing í vinnumarkaðshagfræði, Ingólf Bender, aðalhagfræðing Samtaka iðnaðarins og Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar.
Umsjón: Ingvar Þór Björnsson.

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.