Þetta helst

Feðginin Alexander Dugin og Darya Dugina

Á laugardagskvöldið 20. ágúst sprakk sprengja um borð í bifreið á ferð um fjörutíu kílómetra frá Moskvu. Ökumaður bílsins lét lífið. Hún hét Darya Dugina og var kunn sjónvarpskona í Rússlandi. Margt er enn á huldu um tilræðið þó rússnesk stjórnvöld fullyrði úkraínska leyniþjónustan hafi verið verki. Dugina ók í bíl föður síns, sem margir telja líklegra hafi verið skotmark árásarmanna, hverjir sem þeir eru. Faðir hennar, Alexander Dugin, hefur verið kallaður ?heili Pútíns? þar sem hugmyndafræði hans, greinar og bækur, hafi haft svo mikil áhrif á stefnu Vladimírs Pútín Rússlandsforseta. Dugin hefur meðal annars árum saman kallað eftir því Rússar ráðist inn í Úkraínu. Þetta helst fjallar um hugmyndir Dugins og morðið á dóttur hans.

Frumflutt

25. ágúst 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur sem varpar nýju ljósi á það sem efst er á baugi og stundum það sem verðskuldar meiri athygli.

Umsjón: Sunna Valgerðardóttir og Þóra Tómasdóttir

Þættir

,