Þetta helst

Stríðið á Gaza II: Að loka ekki augunum

Meira en 12.000 börn og konur hafa verið drepin í stríðinu á Gaza og það er nánast gerast í beinni útsendingu fyrir alþjóð. 99. grein sáttmála Sameinuðu þjóðanna var virkjuð af framkvæmdastjóranum í gær, sem þýðir hann geti beitt sér fyrir öryggisráðinu. Þetta er sjaldgæft. En hér heima á Íslandi hafa sum einfaldlega hætt fylgjast með fréttum til vernda sína eigin geðheilsu og reynt sníða hjá myndskeiðum af grátandi, særðum eða dánum börnum á samfélagsmiðlum. Önnur hella sér í hyldýpið, fylgjast skelfingu lostin með hryllingnum sem eykst á Gaza dag frá degi, skrifa undir lista, birta færslur á samfélagsmiðlum, ákalla stjórnvöld, fordæma stjórnvöld, senda tölvupósta, mæta á mótmæli og líklega gráta. Sunna Valgerðardóttir ræðir í þessum seinni þætti um Gaza við Eyrúnu Björk Jóhannsdóttur, sem hefur valið seinni leiðina. Hún reynir allt hvað hún getur til vekja athygli á hryllingnum sem er gerast.

Frumflutt

8. des. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur sem varpar nýju ljósi á það sem efst er á baugi og stundum það sem verðskuldar meiri athygli.

Umsjón: Sunna Valgerðardóttir og Þóra Tómasdóttir

Þættir

,