Þetta helst

Samvist manna og fíla á 21. öldinni

Fíll réðst á og traðkaði niður sjötuga konu, Mayu Murmu, þar sem hún stóð og sótti vatn í brunn í þorpi í austurhluta Indlands, fyrr í mánuðinum. Konan var flutt á spítala þar sem hún lést af sárum sínum. Fíllinn hafði þó ekki lokið sér af heldur sneri hann til baka þegar bálför hennar fór fram við sérstaka athöfn, kastaði líkinu til og traðkaði á því aftur. Hann lét þó ástvini Murmu, sem þó flúðu eins og fætur toguðu, mestu í friði, sögn fjölmiðla.

Hvernig stendur á þessu? Eru fílar árásargjarnir? Er þeim illa við menn? Var þessum sérstaka fíl einstaklega illa við einmitt þessa konu? Geta fílar verið í hefndarhug? Við berum málið undir Jón Halldórsson líffræðing í Þetta helst, í dag.

Þetta helst er fréttaskýringaþáttur þar sem fjallað er um innlend og erlend fréttamál, menningu og daglegt líf. Fréttaskýringar, samtöl og umræður um það sem er efst á baugi.

Frumflutt

23. júní 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur sem varpar nýju ljósi á það sem efst er á baugi og stundum það sem verðskuldar meiri athygli.

Umsjón: Sunna Valgerðardóttir og Þóra Tómasdóttir

Þættir

,