Þetta helst

Of sönn sakamálasaga

Dómstóll í Busan-héraði Suður Kóreu dæmdi á föstudag unga konu til lífstíðarfangelsisvistar fyrir morð. Konan játaði hafa stungið ungan enskukennara til bana, hlutað lík hennar í sundur, komið einhverjum bútum fyrir í ferðatösku og fleygt í ánna. Ástæða morðsins var forvitni. Konan hafði lengi haft mikinn áhuga á sakamálasögum, sérstaklega sönnum sakamálasögum, og orðin forvitin um hvernig það væri fremja morð sjálf. Hún lét verða af því, eftir hafa skipulagt ódæðisverkið í marga mánuði. Sunna Valgerðardóttir ræðir við Arnar Eggert Thoroddsen félagsfræðing um áhuga mannfólksins á glæpum og ráðgátunum í kring um þá, rótina og mögulegar afleiðingar.

Frumflutt

28. nóv. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur sem varpar nýju ljósi á það sem efst er á baugi og stundum það sem verðskuldar meiri athygli.

Umsjón: Sunna Valgerðardóttir og Þóra Tómasdóttir

Þættir

,