Síðdegisútvarpið

Djúpsteiktir tannstönglar,ofkaup á fatnaði,Grindvíkingar á fasteignamarkaði og Lífsbrú

Í lok síðasta árs höfðu greiningadeildir bankanna spáð fyrir um hvernig fasteignamarkaðurinn myndi þróast árið 2024 og í þeim spám var gert ráð fyrir raunlækkun á fasteignaverði en þó nafnvirðishækkun á bilinu 2 til 4 prósent á árinu. Miklar vangaveltur eru uppi um hvort fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu muni rjúka upp í ljósi aðstæðna í Grindavík og er óhætt segja þetta algengasta spurning sem fasteignasalar eru spurðir þessi dægrin. En hvað með Grindvíkinga, hverju eru þeir velta fyrir sér er varðar húsnæðismarkaðinn og hvaða spurninga eru þeir spyrja þá sem sýsla með fasteignir ? Páll H Pálsson fasteignasali kemur til okkar á eftir og ræðir þessi mál við okkur.

Á Íslandi deyja árlega meðaltali 39 einstaklingar í sjálfsvígi og er meira en helmingur þeirra yngri en 50 ára. Vísir miðstöð sjálfsvígsforvarna varð til hér á landi árið 2023 þegar föstu fjármagni frá Heilbrigðisráðuneytinu var veitt ótímabundið í sjáfsvígsforvarnir og í dag klukkan tvö fór fram kynning á Lífsbrú miðstöð sjálfsvígsforvarna og Lífsbrú sjóði í húsakynnum embætti landlæknis. Málefnið er brýnt og við ætlum til okkar á eftir Guðrúnu Jónu Guðlaugsdóttur verkefnastjóra sjálfsvígsforvarna hjá embætti landlæknis til segja okkur betur frá.

Kynning á áætluðum hjólastígaframkvæmdum ársins fóru fram í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkur í gær. Einnig var kynnt yfirlit á völdum framkvæmdum sem eru í undirbúningi og gætu komið til framkvæmda á næstu árum. Unnið er samkvæmt Hjólreiðaáætlun Reykjavíkur 2021-2025. Alls hafa verið byggðir upp 42 kílómetrar af hjólastígum í borginni frá árinu 2010. Við ætlum skoða það allra helsta með Guðbjörgu Lilju Erlendsdóttur

Eins og svo oft áður rákumst við á auglýsingu á samfélagsmiðlum og þessu sinni fjallaði auglýsingin um hugmynd- sköpun og gleði 12 mánaða ferðalag í átt sjálfbærum lífstíl. sem þarna minnir á sig heitir Sigríður Tryggvadóttir og er saumakona en hún kennir og styður fólk sem vill tileinka sér sjálfbærni í fatastíl, blöskrar ofkaup á fatnaði og lélegri nýtingu. Sigríður kemur í Síðdegisútvarpið í dag.

og eftir nokkurt hlé verður meme vikunnar á sínum stað Atli Fannar Bjarkason er mættur á nýjan leik.

Heilbrigðisyfirvöld í Suður-Kóreu hafa varað við æði sem herjar á samfélagsmiðla, þar sem fólk hefur djúpsteikt tannstöngla þannig þeir taki á sig svipað form og krullufranskar, og síðan borðað þá. Ha ? segja margir sem er skiljanlegt það gerum við líka en Hallgrímur Indriðason fréttamaður segir okkur frá þessu eftir smá stund en fyrst ætlum við taka stöðuna á Reykjanesinu en rafmagn fór þar af um miðjan dag og á línunni hjá okkur er Steinunn Þorsteinsdóttir upplýsingafulltrúi Landsnets.

Við heyrum líka í Steinunni Þorsteinsdóttur upplýsingafulltrúa Landsnets vegna rafmagnsleysis á Suðurnesjum fyrr í dag.

Frumflutt

25. jan. 2024

Aðgengilegt til

24. jan. 2025
Síðdegisútvarpið

Síðdegisútvarpið

Þau Valur Grettisson, Guðrún Dís Emilsdóttir og Hrafnhildur Halldórsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu á daginn. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,