Síðdegisútvarpið

23. október

Niðurstöður nýjustu talningar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar á íbúðum í byggingu hafa verið birtar. Í ljós kemur samdráttur er í fjölda nýrra framkvæmda vegna íbúðabygginga á landinu. Við ætlum fara yfir helstu niðurstöður HMS hér á eftir þegar Elmar Þór Erlendsson framkvæmdastjóri hjá HMS kemur til okkar.

Hafsteinn Vilhelmsson er 39 ára fjölskyldufaðir búsettur í Kópavogi. Hafsteinn var æddleiddur hingað til lands frá Sri Lanka þegar hann var eins og hálfs mánaða en hann veit lítið sem ekkert um uppruna sinn. Hafsteinn ætlar koma til okkar í Síðdegisútvarpið á eftir, segja okkur sögu sína og fara yfir þær áskoranir sem hann hefur staðið frammi fyrir vegna þessa.

Umræðuþátturinn Torgið fer í loftið í kvöld á RÚV. Þetta er þáttur í beinni útsendingu þar sem fólkið í landinu varpar fram spurningum og stendur fyrir máli sínu. Í þessum fyrsta þætti verður umfjöllunarefnið mömmuskömm eða mammviskubit. Umsjónarmenn þáttarins þau Sigíður Halldórsdóttir og Baldvin Þór Bergsson koma til okkar á eftir og segja okkur betur frá.

Við munum ræða um ferfætlingana okkar við Theodóru Róbertsdóttur dýrahjúkrunafræðing. Hún svarar spuringum um hunda og kattahald en þó aðalega hundana sem fer heldur betur fjölgandi hér á landi.

Logi Einarsson þingmaður Samfylkingarinnar er fyrsti flutningsmaður þingsályktunartillögu sem hann ásamt 20 öðrum þingmönnum úr öllum flokkum lögðu fram fyrir helgi á Alþingi um Sjúkrahúsinu á Akureyri verði gert kleift framkvæma hjartaþræðingar. Í ályktuninni er lagt til Alþingi feli ráðherra hefja þegar í stað vinnu við gera Sjúkrahúsinu á Akureyri þetta kleyft.

Frumflutt

23. okt. 2023

Aðgengilegt til

22. okt. 2024
Síðdegisútvarpið

Síðdegisútvarpið

Þau Valur Grettisson, Guðrún Dís Emilsdóttir og Hrafnhildur Halldórsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu á daginn. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,