Ný gögn þykja leiða ljós í mikinn mun á grunnskólum, eftir því hvort nemendur þaðan klári framhaldsskóla á þremur árum eður ei. Ríki og sveitarfélög hafa ekki sinnt lögbundnu eftirliti með grunnskólum síðustu ár, á sama tíma og alþjóðlegar kannanir sýna fram á að námsárangri grunnskólabarna fer hrakandi. Arnar Ævarsson kom til okkar en hann er sérfræðingur í slíku eftirliti og hefur gagnrýnt þessa þróun.
Alþingi samþykkti í gær að Íslendingar skyldu greiða atkvæði 29. ágúst um framhald viðræðna um aðild að Evrópusambandinu. En hverjar eru efasemdir þjóðarinnar í garð Evrópusamrunans? Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðingur fór yfir niðurstöður nýrrar greinar sem hann ritaði og birtist í vísindaritinu Open Research Europe.
Atlantshafsbandalagið hefur fordæmt kæruleysi Rússa eftir að rússneskur dróni hæfði íbúðablokk í Rúmeníu snemma í morgun. Eldur braust út og tveir særðust. En hvaða þýðingu hafa svona atburðir fyrir bandalagið og Atlantshafssáttmálann? Varnarmálasérfræðinginn Arnór Sigurjónsson rýndi í Úkraínustríðið með okkur.
Á morgun verður Listahátíð í Reykjavík sett í 35. sinn í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi en þar verður einnig opnuð yfirlitssýning á verkum Karin Sander. Þær Þura Stína Kristleifsdóttir og Lára Sóley Jóhannsdóttir komu til okkar.
Norðfjörður er líklega einn best veðurmældi fjörður landsins en þar býr hópur áhugaveðurfræðinga sem heldur úti sínum eigin veðurmælum. Í firðinum eru alls um tíu mælar, þar af sirka átta sem eru í einkaeigu. Einn þessara veðuráhugamanna er Hlynur Sveinsson en hann heldur úti vefsíðunni Veðurstofu Norðfjarðar. Hólmfríður renndi austur í Neskaupstað fyrr í mánuðinum og ræddi við Hlyn.
Lokaþáttur sjónvarpsseríunnar 20 og eitthvað verður sýndur á RÚV í kvöld. Þau Vigdís Hafliðadóttir og Óli Gunnar Gunnarsson, tveir af höfundum og aðalleikurum þáttanna komu til okkar af því tilefni.
Það verður sannkölluð hátíð fyrir íslenskt mótorhjólaáhugafólk um helgina á Flúðum þegar mótið Flúðir 5tímar verður haldið á Syðra-Langholti. Gunnlaugur Karlsson veit allt um mótið og var á línunni í lok þáttar.