Í kvöld fara Íslensku tónlistarverðlaunin fram í Hörpu og hefst útsending þeirra á RÚV kl. 19:45. Einar Bárðarson, sem er stjórnarformaður Tónlistarmiðstöðvar Íslands og fyrrum framkvæmdastjóri ÍTV, bendir á í grein sem hann skrifar að hlúa þurfi að grunninum þegar kemur að tónlistarsköpun og notar Laufeyju sem dæmi. Þegar hún tók við Grammy-verðlaunum sínum fyrr á árinu minnti hún sérstaklega á upprunann – tónlistarkennsluna og tónlistarskólana. Einar kom til okkar.
Gervigreind er farin að hafa þó nokkur áhrif á vinnumarkaðinn –en hversu langt nær hún þegar kemur að ráðningum? Erum við á leiðinni í átt að sjálfvirkum ráðningum eða mun mannlegi þátturinn áfram skipta sköpum? Kristján Kristjánsson frá 50skills kom til okkar.
Reykjavíkurborg auglýsir nú eftir tilnefningum til Mannréttindaverðlauna Reykjavíkurborgar 2026. Markmið mannréttindaverðlaunanna er að vekja athygli á mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar og mikilvægi samfélags þar sem mannréttindi eru virt. En hverja má tilnefna? Sabine Leskopf, borgarfulltrúi og formaður Mannréttindaráðs sagði okkur allt um þetta.
Seðlabankinn hækkaði stýrivexti í dag – og gagnrýni lætur ekki á sér standa. Formaður VR segir launafólk fast í vítahring þar sem hærri vextir bitni verst á heimilunum og forsendur kjarasamninga séu að bresta. Við heyrðum í Höllu Gunnarsdóttur formanni VR í þættinum.
Hvernig viljum við búa í framtíðinni –og getum við hugsað húsnæðismál á annan hátt en við eigum að venjast? Svokölluð kjarnasamfélög, þar sem áhersla er lögð á samvinnu, hagkvæmni og sterkari tengsl milli nágranna hljómar heillandi en hugmyndirnar verða kynntar á húsnæðisfundi í Ráðhúsinu á föstudag. Þórhildur Bryndís Guðmundsdóttir, arkitekt hefur skoðað þessi mál og hún kom til okkar.
Týndu Strákarnir er hlaðvarp sem fjallar um kerfið, veggina og afleiðingarnar. Þeir Steindór Þórarinsson og Jón K. Jacobsson ræða þar við fólk sem hefur lent í kerfinu, aðstandendur þeirra og fagfólk sem vinnur innan þess og rekst á hindranir. Í dag kom svo út skýrsla Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um brunann á Stuðlum þar sem sonur Jóns lést. Skýrslan dregur fram margt sem fór úrskeiðis í brunavörnum á Stuðlum. Brunahólfun var ekki virk og aflæsingarbúnaður á flóttaleiðum virkjaðist ekki. Skýrsluhöfundar draga fram marga annmarka á húsnæðinu, eftirliti með því og brunavörnum. Við ræddum við þá Steindór og Jón.