Síðdegisútvarpið

Ferðalög innanlands, Gísli á Uppsölum og veðurútlitið í sumar

Fyrir nokkrum vikum fullvissaði veðurfræðingurinn Sigurður Þ. Ragnarsson, Siggi stormur, þjóðina um sumarið kæmi 21. maí. Miðað við veðurblíðuna í dag á vesturhluta landsins var hann með þetta alveg á hreinu. Siggi var á línunni.

Ríflega helmingur kvenna í Rafiðnaðarsambandi Íslands og VM Félagi vélstjóra og málmtæknimanna hefur orðið fyrir kynferðislegri áreitni í starfi sínu samkvæmt nýrri rannsókn Vörðu rannsóknastofnunar vinnumarkaðarins. Þetta eru meðal helstu niðurstaðna rannsóknarinnar Konur í karllægum greinum sem byggir á svörum 222 kvenna innan RSÍ og VM. Til ræða þessa sláandi tölur kom til okkar formaður Rafiðnaðarsambandsins, Jakob Tryggvason.

Árið 2022 opnaði sýningin ABBA Voyage í London og vakti heimsathygli fyrir byltingarkennda tónleikaupplifun sína. Nú, fjórum árum síðar virðist enn allt vera í fullum gangi og það veit engin betur framleiðandinn Svana Gísladóttir. Við heyrðum í henni um þessa miklu velgengni sýningarinnar og hvort hún hafi á sínum tíma trúað því verkefnið ætti eftir verða svona stórt.

Ferðasumarið er framundan og margir vilja ferðast innanlands og til segja okkur betur af því sem í boði er hjá Ferðafélagi Íslands. Páll Guðmundsson framkvæmdastjóri kom til okkar.

Í sumar verður opnað safn tileinkað Gísla á Uppsölum í Selárdal í Arnarfirði, einum eftirminnilegasta einsetumanni Íslands. Við heyrðum í Kára Schram um verkefnið, uppbygginguna og hvers vegna saga Gísla heldur áfram heilla þjóðina áratugum síðar.

Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildamynda, fer fram á Patreksfirði næstkomandi helgi. Þarna kennir ýmissa grasa í íslenskri heimildamyndagerð og svo verða það heiðursgestirnir. Þeir verða kvikmyndagerðarfólk frá heimskauts-nágrannasvæðum okkar á Grænlandi, Færeyjum og Norður héruðum Skandinavíu. Kristín Andrea Þórðardóttir, stjórnandi hátíðarinnar, var á línunni.

Birt

20. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,