Fjöldi snjóflóða hefur fallið í Súðavíkurhlíð í dag og veginum hefur verið lokað. Þá féllu tvö snjóflóð fyrir ofan Flateyri. Þá er Flateyrarvegur á óvissustigi. Við tókum stöðuna hjá Hlyn Hafberg Snorrasyni, yfirlögregluþjóni hjá Lögreglunni á Vestfjörðum.
Í gær fengum við Ásdísi Kristjánsdóttur bæjarstjóra í Kópavogi til að ræða uppbyggingu menningarmiðstöðvar í Smáralind en verkefnið var harðlega gagnrýnt af minnihlutanum. Oddviti Viðreisnar í Kópavogi, Theodóra S. Þorsteinsdóttir, skrifaði harðorða grein á Vísi í gær og var ekki sátt með vinnubrögðin. En hvað er hún helst ósátt við? Theodóra mætti til okkar.
Álag á heilsugæsluna hefur aukist mikið á undanförnum árum og bið eftir heimilislækni á höfuðborgarsvæðinu er nú að jafnaði um 27 dagar –sem er margfalt lengri tími en fimm daga viðmið landlæknis. Í nýrri greiningu Viðskiptaráðs er bent á að skipulag kerfisins og rekstrarumhverfi heilsugæsla geti haft mikil áhrif á bæði afköst og þjónustu. Þar kemur meðal annars fram að einkareknar heilsugæslur séu að jafnaði hagkvæmari og njóti meiri ánægju meðal skjólstæðinga. Ein þeirra stöðva sem kemur betur út en flestar aðrar í þessari úttekt er Heilsugæslan á Kirkjusandi. Við heyrðum í Oddi Steinarssyni sem er, einn eigenda stöðvarinnar, og varaformaður félags heimilislækna og spurðum hann út í stöðuna í heilsugæslunni og hvað megi gera til að bæta aðgengi og þjónustu.
Í morgun bárust þær fréttir að fjarskiptafélagið Síminn hafi náð samkomulagi við Sýn um kaup á vef- og útvarpsmiðlum félagsins, þar á meðal Vísi, Bylgjunni, FM957 og fleiri miðlum. Heildarvirði viðskiptanna er sagt nema um 5,2 milljörðum króna en kaupin eru þó háð áreiðanleikakönnun og samþykki eftirlitsaðila. Þetta eru stór tíðindi á íslenskum fjölmiðlamarkaði og geta haft áhrif á samkeppni, fjölmiðlafrelsi og stöðu blaðamanna. Til okkar kom Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands.
Alþýðusamband Íslands fagnar í dag 110 ára afmæli. Í meira en heila öld hafa samtökin barist fyrir bættum kjörum og réttindum launafólks á Íslandi. En hvernig lítur staða verkalýðshreyfingarinnar út í dag og hvert er hlutverk hennar á breyttum vinnumarkaði? Við ætlum að ræða það við Finnbjörn Hermannsson, forseta ASÍ, sem kom til okkar í Síðdegisútvarpið.
Pétur Oddbergur Heimisson verkefnastjóri og Hanna Björk Guðjónsdóttir Félags ílenskra söngkennara sögðu okkur frá einu söngkeppni sinnar tegundar á Íslandi þar sem keppt er í klassískum söng.