Við byrjuðum í Suðurnesjabæ, sem er sameiginlegt sveitarfélag Sandgerðis og Garðs. Hólmfríður María hefur verið dugleg að heimsækja þau sveitarfélög sem koma fyrir í oddvitaumræðum í útvarpi og sjónvarpi hér hjá okkur. Í dag eru það Suðurnesjabær og Fjarðabyggð sem koma fyrir. Hólmfríður María fór í Fjarðabyggð fyrir helgi en Hrafnhildur var stödd í Suðurnesjabæ og talar við Hafþór Erni Ólason.
Í Spánarspjalli með Jóhanni Hlíðar í dag var farið um víða völl. Jóhann sagði okkur frá ógrynni kastala sem grotna niður á Spáni, af mikilli innviðaskuld þar í landi og í lokin vitjuðum við flóðhesta Pablo Escobar í Kólumbíu.
Eitt af fjórum aðalhandritum Snorra-Eddu, Uppsala-Edda, er komið til landsins í láni frá Svíþjóð. Handritið er eitt af fimm íslenskum handritum úr sænskum söfnum sem verða til sýnis á sýningunni Heimur í orðum í Eddu, húsi íslenskunnar. Til að segja betur frá þessum dýrgripum kom Guðrún Nordal, forstöðumaður Árnastofnunar, til okkar.
Bilaður rafmótor, bókunarvél í Hollandi sem varð eldi að bráð og óhagstæð veðurskilyrði til dýpkunar í Landeyjahöfn, allt eru þetta vandamál sem stjórnendur Herjólfs hafa þurft að glíma við síðustu daga og vikur. Við ræddum við framkvæmdastjórann, Ólaf Jóhann Borgþórsson, um stöðuna.
Hjólreiðamennirnir Einar Guttormsson og Hartmann Guðmundsson eru nú í krefjandi ferð um vesturstönd Bandaríkjanna frá Seattle til Arizona. Þeir ætla að hjóla 3.500 km á 37 dögum til styrktar Parkisonsamökunum og til að vekja athygli á því hve miklu máli hreyfing skiptir í baráttunni við sjúkdóminn. Við heyrðum í Einari.