Líkt og kom fram í þættinum í gær þá er fyrirhugað að innheimta veggjalda á nýjum vegi yfir Hornarfjarðarfljóti muni kosta 1.500 krónur en gjaldið mun síðan lækka eftir því sem ferðum fjölgarHjalti Þór Vignisson bæjarstjóri Hornarfjarðar sem við ræddum við í gær hefur af þessu miklar áhyggjur sérstaklega fyrir íbúa á svæðinu og hann spyr hvers vegna gjaldið er þrisvar sinnum hærra en áætlað veggjald verður yfir Ölfusárbrú. Við leituðum svara í dag hjá Guðmundi Val Guðmundssyni sem er framkvæmdastjóri þróunarsviðs hjá Vegagerðinni.
Mál málanna í þessari viku fyrir utan þjóðaratkvæðagreiðsluna framundan er uppsagnirnar sem kynntar voru í gær hjá Reykjavíkurborg. Í þeirri umræðu hefur Kári Sigurðsson, formaður Sameykis látið til sín taka og í morgun birti Kári færslu á FB þar sem hann gagnrýnir m.a. að Sameyki hafi enn ekki fengið svör frá Reykjavíkurborg um rökstuðning fyrir uppsögnum sem hófust fyrr í sumar. Hann segir erfitt að skilja hvernig hægt sé að taka stórar ákvarðanir hratt, en á sama tíma taki margar vikur að svara spurningum stéttarfélagsins um réttindi og stöðu þeirra sem misst hafa vinnuna. Þá gerir hann einnig uppsagnir skólaliða að umtalsefni, dregur í efa þær skýringar sem borgaryfirvöld hafa gefið og varar við því að fleiri verkefni í grunnþjónustu borgarinnar kunni að verða boðin út á næstu misserum. Við ræddum þessa stöðu, samskipti Sameykis við Reykjavíkurborg, áhrif aðgerðanna á félagsmenn og hvað Kári telur að sé fram undan.
Um áramótin taka í gildi umfangsmiklar breytingar á heilbrigðiseftirliti landsins þegar verkefni færast frá sveitarfélögum til ríkisins. En hverju þarf að huga að áður en það gerist, hvaða verkefni verða eftir og hvernig má koma í veg fyrir að mikilvæg þekking tapist úr sveitarfélögum við tilfærsluna. Um það ríkir mikil óvissa. Sigrún Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri heilbrigðisnefndar Suðurlands, var á línunni.
Þrír dagar eru í að þjóðin greiði atkvæði um hvort hefja eigi aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný eður ei. Mikill hiti hefur verið í umræðunni í tengslum við þessi mál og fyrir suma hafa þær verið alveg óskiljanlegar þar sem lykilhugtök og fyrirbæri hafa verið að flækjast fyrir. Í dag ætlum við að fá svar við spurningunni “hvað er EES-samningurinn?”. Dr. Gunnar Þór Pétursson, forseti lagadeildar Háskólans í Reykjavík, kom til okkar.
Við ræðum enn frekar þessar umfangsmiklu breytingar á stjórnskipulagi velferðarsviðs og skóla og frístundarsvið sem Borgarráð Reykjavíkur samþykkti í gær. Breytingarnar hafa í för með sér að 86 starfsmenn missa störf sín eða færast til innan kerfisins, fjórar miðstöðvar og fjöldi starfseininga verða lagðar niður og borgin áætlar allt að 900 milljóna króna hagræðingu á ári. En gagnrýnendur segja breytingarnar illa undirbúnar og óttast að nærþjónusta í hverfunum veikist. Björg Magnúsdóttir, borgarfulltrúi Viðreisnar og formaður velferðarráðs, kom til okkar.
Í gær bárust þær fregnir að risi í tónlistarheiminum væri falinn frá. Dolly Parton væri látin ríflega áttræð. Við fengum Árna Matthíasson sérfræðing Fréttastofunni til okkar að ræða líf og tónlistarferil þessarar einstöku konu.