Niðurstöður úr þjóðaratkvæðagreiðslunni liggja fyrir, meirihluti Íslendinga vill ekki hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Síðustu vikur hefur fólk annað hvort ekki getað talað um annað en ESB á meðan aðrir hafa forðast það eins og heitan eldinn. Umræðurnar hafa verið beittar, þjóðin skiptist í fylkingar en sjaldan hafa alþjóðamál verið jafn mikið í deiglunni og nú. Sonja Sif Þórólfsdóttir aðstoðarfréttastjóri Morgunblaðsins og Agnar Már Másson fréttamaður Sýnar komu til okkar og gerðu upp síðustu vikur og mánuði.
40 ára samfelldri sögu kvöldfrétta Sýnar og Stöðvar 2 lýkur í kvöld. Þetta er mikið högg fyrir fjölmiðlaumhverfið á Íslandi. Á annan tug starfsmanna félagsins missir vinnuna og að óbreyttu verður það aðeins í höndum Ríkisútvarpsins að senda út daglegar kvöldfréttir í sjónvarpi. Fjölmiðlafólkið Eyrún Magnúsdóttir og Páll Magnússon komu til okkar, rýndu í stöðuna og rifjuðu upp söguna.
Af hverju var barnið mitt á bekknum í síðasta leik? Þetta er spurning sem margir þjálfarar kannast við og vekur jafnframt upp aðra spurningu – hvernig líta heilbrigð samskipti þjálfara og foreldra út? Og hvað gerist ef foreldrar taka alltaf slaginn fyrir barnið? Er mótlætið alltaf óvinur eða þurfa börn hugsanlega að læra að takast á við vonbrigði í íþróttum? Ragna Ingólfsdóttir, íþróttastjóri, þjálfari og meistaranemi í íþróttavísindum, kom til okkar og ræddi þessi mál.
Úlfur Eldjárn tónskáld, raftónlistarmaður og hljóðfæraleikari kom fram á írsku tónlistarhátíðinni Electric Picnic sl. helgi þar sem hann flutti tónlist og tók þátt í umræðum um tónsmíðar fyrir hlaðvörp. Fram undan eru einnig stórtónleikar í Fríkirkjunni 6. september, þar sem hann kynnir nýtt efni af væntanlegri plötu ásamt úrvals hópi tónlistarmanna. Við fengum að heyra meira um þessi verkefni, tónlistina og það sem er fram undan hjá Úlfi í Síðdegisútvarpinu í dag.
Hvað gerist þegar við reynum að halda í tímann á sama tíma og hann rennur okkur úr greipum? Heimildarmyndin Um tímann og vatnið var frumsýnd fyrir helgi hér á landi en þar eru persónulegar fjölskylduminningar og örlög jöklanna samofin í áhrifamikilli frásögn um breytingar, minningar og það sem við getum enn varðveitt. Myndin er úr smiðju Söru Dosa, sem hefur hlotið Óskars- og BAFTA-tilnefningar byggir myndina á hugmyndum og verki Andra Snæs Magnasonar um tímann, náttúruna og framtíðina. Við heyrðum í Andra Snæ í þættinum í dag.
Ísland leikur í kvöld gegn Tyrklandi í undankeppni heimsmeistaramóts karla í körfubolta. Hannes S. Jónsson framkvæmdarstjóri Körfuknattleikssambandsins var á línunni.