Síðdegisútvarpið

Breytingar hjá borginni, nýr íslenskur samfélagsmiðill og veggjöld

Innheimta veggjalda á nýjum vegi yfir Hornafjarðarfljót hefst 1. september nk. Stök ferð mun kosta 1.500 krónur, en gjaldið lækkar eftir því sem ferðum fjölgar. Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri Hornafjarðar hefur sagt í viðtölum hann fagni þessari mikilvægu samgöngubót en segir um leið gjaldtakan skjóti skökku við. Hann bendir á stakt gjald yfir Hornafjarðarfljót verði þrefalt hærra en fyrirhugað gjald við nýja Ölfusárbrú og kallar eftir því stjórnvöld endurskoði fyrirkomulagið. Við ræddum þetta við Hjalta í þættinum í dag.

Nýr íslenskur samfélagsmiðill hefur litið dagsins ljós. Hann heitir Alvilda og er hægt í smáforritið í símann þinn. Höfundarnir á bakvið Alvilda koma til okkar til kynna okkur hvað þarna er um ræða. Hjónin Snorri Gylfason og Ragna Árný Lárusdóttir mættu til okkar.

Spánarspjall með Jóhanni Hlíðar var í þættinum í dag. Jóhann sagði okkur frá umfjöllun spænskra fjölmiðla um þjóðaratkvæðagreiðsluna á laugardaginn, frá bakslagi í jafnrétti kvenna á Spáni og líka frá jólalottóinu þar í landi. Ekki seinna vænna.

Nýr meirihluti í borgarstjórn hefur verið með niðurskurðarhnífinn á lofti frá því hann tók við. Gjöld hafa hækkað, skólaakstur í Hlíðunum lagður niður og í dag var tugum starfsmanna sagt upp og skipulagsbreytingar á velferðar- og skóla- og frístundasviði boðaðar. Pétur Marteinsson borgarfulltrúi Samfylkingarinnar mætti til okkar.

Við sögðum frá því hér í þættinum í gær Ferðafélag Íslands, Útivist og Björgunarsveitin Dagrenning á Hvolsvelli hefðu sent frá sér viðvörun vegna hættulegra aðstæðna á gönguleiðinni yfir Fimmvörðuháls. Samkvæmt tilkynningunni er ekki ráðlagt ganga leiðina eins og staðan er í dag. Hopun jökulsins hefur á undanförnum árum breytt landslaginu verulega, sprungur og gil hafa opnast og eftir miklar rigningar undanfarna daga hefur ástandið versnað enn frekar. En hvernig horfir þetta við þeim sem þekkja svæðið best og taka á móti fjölda ferðafólks á hverju sumri? Við slóum á þráðinn til Sveu Sigurgeirsdóttur, staðarhaldara í Básum í Þórsmörk.

Það styttist í þjóðaratkvæðagreiðsluna á laugardaginn. Og til einfalda málin er gott útskýringar á því sem rætt er um í aðdragandanum. Í gær spurðum við einfaldrar spurning sem Gylfi Zöega hagfræðingur svaraði; hvað er verðtrygging. Í dag fengum við Eirík Bergmann stjórnmálafræðing til fræða okkur um Maastricht-sáttmálann.

Bæjarhátíð Suðurnesjabæjar er farin af stað en hún ber heitið Vitadagar - hátíð á milli vita. Mikið stendur til bæði í Sandgerði og Garði. Við töluðum við Alexöndru Jóhannesdóttur bæjarstjóra.

Birt

25. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,