Síðdegisútvarpið

Hátt matarverð á Íslandi, Edition málið og nýjar áherslur í grunnskólum borgarinnar.

Ríflega 2.600 kandídatar brautskrást frá Háskóla Íslands á morgun í tveimur athöfnum í Laugardalshöllinni. Þetta verður jafnframt fyrsta vorbrautskráning Silju Báru R. Ómarsdóttur sem rektors Háskóla Íslands. Við heyrðum í Silju Báru í Síðdegisútvarpinu í dag um stóra daginn fram undan, brautskráninguna og nýja hlutverkið.

Rúmlega 40 prósent kaupsamninga í apríl vörðuðu fyrstu fasteignakaup segir HMS ýmis úrræði séu í boði sem geta hjálpað fyrstu kaupendum inn á fasteignamarkaðinn. HMS stendur fyrir opnum fundi fyrir fyrstu kaupendur á mánudaginn 15. júní.

Á fundinum munu fulltrúar HMS meðal annars fjalla um ólíkar tegundir húsnæðislána, sértæk úrræði fyrir fyrstu kaupendur og viðhald fasteigna. Páll Heiðar Pálsson, eigandi Pálsson fasteignasölu, og Björn Berg Gunnarsson, fjármálaráðgjafi, verða jafnframt gestir á fundinum og munu miðla reynslu sinni af fyrstu kaupum. Páll Heiðar kom til okkar.

Ungir íþróttakappar á aldrinum tveggja til tólf ára spreyta sig á pumpubraut á hjólamóti barna í Neskaupstað á morgun. Þetta er í fyrsta sinn sem hjólamótið er haldið en skipuleggjendur gera ráð fyrir hundrað börn taki þátt. Við ræddum við manninn á bak við mótið, Harald Mími Bjarnason, sem var í óðaönn undirbúa brautina.

borgarstjórn vill innleiða samræmt lokapróf úr grunnskólum Reykjavíkur, hefja læsisátak, innleiða og efla móttökudeildir fyrir börn af erlendum uppruna, birta niðurstöður PISA opinberlega og færa einkunnagjöf aftur á talnakvarðann. Við ræddum við Bjarna Fritzson, nýjan formann skóla- og frístundaráðs, um áherslurnar.

Íslendingar greiða meðaltali 55 prósentum hærra verð fyrir matvöru en íbúar Evrópusambandsins. Þetta kemur fram í greiningu Samkeppniseftirlitsins, sem er liður í víðtækri athugun þess á íslenskum dagvörumarkaði. Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, kom til okkar.

Aðalmeðferð í Edition-málinu hófst í morgun. Ming Ting Mancel var fyrst í vitnastúku en hún er ein til frásagnar af því sem gerðist kvöldið sem dóttir hennar og maður létust á hótelherbergi Edition í júní á síðasta ári. Við ræddum við Þóru Tómasdóttur fréttakonu sem hefur fjallað ítarlega um málið.

Umræða um framtíð miðbæjar Kópavogs hefur verið áberandi undanförnu, ekki síst eftir Vinir Hamraborgar hófu undirskriftasöfnun þar sem skorað er á bæjaryfirvöld endurskoða fyrirhugaða uppbyggingu á svæðinu. Þrátt fyrir markmiðið safna þúsundum undirskrifta hafa tæplega 400 manns skrifað undir þegar þetta er rætt. Einn þeirra sem hefur gagnrýnt áformin hvað harðast og staðið baki söfnuninni er fyrrverandi bæjarfulltrúi Vina Kópavogs er Kolbeinn Reginsson kom til okkar.

Birt

12. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,