Við byrjum á Akureyri en í kvöld mætast oddvitar þeirra átta lista sem bjóða fram í bæjarfélaginu, klukkan 20.55 á Rúv. Akureyringurinn Inga Dagný Eydal var í hljóðstofunni okkar fyrir norðan og við ræddumm við hana um það helsta í bæjarlífinu!
Svokölluðum Taylor Swift-áhrifum er spáð hér á landi vegna sólmyrkvans í ágúst þegar verð á flugfargjöldum, bílaleigu og gistingu taka stökk. Landsbankinn varar við því að áhrifin verði slík að töluverðar líkur séu á að sólmyrkvinn hafi áhrif á verðbólgumælingar og gæti hann því ógnað langtímakjarasamningum en næsti formlegi endurskoðunarpunktur þeirra verður 1. september. Konráð Guðjónsson, hagfræðingur og ráðgjafi Reitunar, fór yfir stöðuna með okkur.
Fréttavefurinn Trölli.is sem stofnaður var fyrir átta árum síðan hefur fest sig í sessi sem öflugur miðill fyrir fréttir og menningu á Norðurlandi, með sterka tengingu við Fjallabyggð. Hann var stofnaður af hjónunum Kristínu Magneu Sigurjónsdóttur og Gunnari Smára Helgasyni og á þessum tíma hafa verið birtar yfir 13 þúsund fréttir og greinar. Nú eru komnir nýir eigendur að vefnum en eins og margir vita búa Gunnar Smári og Kristín hluta ársins í helli á Kanarýeyjum. Við heyrum í Kristínu og spyrjum aðeins út í framtíðaráformin.
Áætlað er að næturflutningar á vindmyllum í Vaðölduver hefjist aðfaranótt 7. maí og standi yfir í um 7 til 9 vikur. Flutt verður sex nætur í viku, með hléi aðfaranótt sunnudags, og ferðatími frá Þorlákshöfn verður yfirleitt 4 til 6 klukkustundir.Verkefnið hefur verið stór hluti af daglegu lífi Sigurgeirs Björns Geirssonar, yfirverkefnistjóri Vaðölduvers síðustu tvö ár, segir okkur frá verkefninu.
Ragnar Eyþórsson kíkti til okkar og fór yfir það helsta sem boðið er upp á hjá sjónvarpsveitum og stöðvum. Á Torginu í kvöld verður sjónum beint að þyngdarstjórnun. Baldvin Þór Bergsson og Sigríður Halldórsdóttir sögðu okkur betur frá því sem er fram undan í þættinum.
Stærsti tískuviðburður ársins var haldinn í gærkvöldi í Metropolitan-safninu í New York, Met Gala-hátíðin. Tíska, listasaga og mannslíkaminn voru í brennidepli en þemað í ár var búningalist. Til að segja okkur betur frá því sem bar hæst í gær komu til okkar Dóra Júlía Agnarsdóttir, blaðamaður á Lífinu á Vísi, og Þorsteinn Gauja Björnsson, nemi í fatahönnun.