Líkt og kom fram í fréttum dagsins hefur frammistaða íslenskra grunnskólabarna aldrei mælst jafn slæm og í nýjustu PISA-könnuninni. Færri nemendur en áður búa yfir grunnhæfni í stærðfræði og lesskilningi, og færri sýna afburðahæfni. Okkar eina sanna Hólmfríður María hefur skoðað niðurstöðurnar vel og vandlega og hún kom til okkar á eftir og sagði okkur af því helsta.
Skíðasvæðið í Skálafelli hefur verið lokað undanfarin fjögur ár og nú er uppi hávær umræða um að hætta við alla frekari uppbyggingu á svæðinu í stað þess að opna það aftur. Samstarfsnefnd skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins samþykkti nýverið að óska eftir því að stjórn Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu endurskoði samkomulag frá árinu 2018 um uppbyggingu á svæðinu. Einn nefndarmanna, Magnús Benediktsson, sem er forseti bæjarstjórnar á Seltjarnarnesi, er mótfallin því að opna Skálfell aftur. Hann kom til okkar.
158. löggjafarþing þjóðarinnar var sett í dag. Þingsetningarathöfn hófst klukkan 13:30 með guðþjónustu í Dómkirkjunni þar sem forseti Íslands, biskup, forseti Alþingis, ráðherrar og þingmenn gengu fylktu liði úr Alþingishúsinu. Magnús Geir Eyjólfsson fréttamaður fylgdist með hátíðarathöfninni í dag og hann kom til okkar.
Miklar breytingar hafa staðið yfir á Keflavíkurflugvelli undanfarna mánuði og á morgun verða kynntar breytingar og ný hönnun á verslunum Ísland Duty-Free. Um er að ræða 3 verslanir brottfararverslun, komuverslun og verslun við brottfararhlið. Helga Dís Jakobsdóttir, er framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free hún kom til okkar.
Spánarspjall með Jóhanni Hlíðar þessa vikuna er ekki í beinni frá Spáni heldur mætti kóngurinn af Cartagena í hljóðver til okkar.
Leikhópurinn HundraðP frumsýnir á ný tragikómedíuna um Gunnellu, hjartahlýja, sjálfstæða og fyndna konu sem situr við matarborðið að læra að prjóna þegar óvæntur gestur bankar upp á og gæti breytt lífi hennar. Verkið, sem var unnið í Listaháskóla Íslands, lofar bæði hlátri og klökkum augnablikum. Til að segja okkur meira frá sýningunni kom til okkar höfundurinn, leikkonan og leikstjóri verksins, Katla Þórudóttir Njálsdóttir, kom til okkar.