
Síðdegisútvarpið
Hólmfríður María Ragnhildardóttir, Rúnar Róbertsson og Júlía Margrét Einarsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Starfsþróun kennara, stórsókn í námsgögnum og forvarnir gegn brotthvarfi. Allt má þetta finna í drögum að nýrri aðgerðaáætlun í menntastefnu stjórnvalda sem á að taka gildi á næsta ári. Við ræddum við kennarana Öglu Þyrí Kristjánsdóttur og Hólmfríði Jennýjar Árnadóttur um þessar aðgerðir sem kynntar hafa verið til sögunnar.
Í dag er Bleiki dagurinn en október ár hvert fer fjáröflun Krabbameinsfélagsins af stað með sölu Bleiku slaufunnar. Í ár hvetur Krabbameinsfélagið konur til vera vakandi fyrir einkennum sem bent geta til krabbameins eins og óútskýrðu þyngdartapi, sárum sem ekki gróa, breytingum á fæðingarblettum, hnútum, óútskýrðri þreytu, óvenjulegum blæðingum og fleiru. Flest einkenni reynast vera af völdum annars en krabbameins, en því fyrr sem krabbamein greinast, því betri líkur eru á lækningu og léttari meðferð. Og það gefur vonir að í árslok 2025 voru tæplega 11 þúsund konur á lífi sem höfðu fengið krabbamein. Sigrún Elva Einarsdóttir teymisstjóri í fræðslu og forvörnum hjá Krabbameinsfélaginu kom til okkar.
Hljómsveitin Nýdönsk rataði nýverið í Austurgluggann fyrir óheppilegt atvik fyrr í þessum mánuði. Í frétt í blaðinu segir að þrír úr sveitinni hafi stolið bíl af gáleysi. Jón Ólafsson, hljómborðsleikari og ökumaður stolna bílsins, var á línunni og sagði okkur frá því hvernig þetta atvikaðist.
Tveir mjög alvarlegir veikleikar hafa fundist í PHP, forritunarmáli sem knýr mikinn fjölda vefsíðna. Gallarnir gætu gert tölvuþrjótum kleift að ná stjórn á viðkvæmum kerfum. Þetta kom fram í tilkynningu netöryggissveitar íslenskra stjórnvalda, CERT-IS, fyrr í dag, þar sem sveitin hvatti fyrirtæki og stofnanir með slík kerfi að uppfæra þau um leið og það var mögulegt, sem mér skilst að hafi verið klukkan 14 í dag. Magni R. Sigurðsson forstöðumaður CERT-IS var á línunni.
Í dag er 21. október og á þessum degi fyrir 20 árum var Hellisheiðavirkjun tekin í notkun. Í dag er uppsett afl virkjunarinnar 303 megavött og auk þess framleiðir hún 950 l/sek af heitu vatni og eftir áramót verður framleiðslugetan komin í 1500 l/sek. Við ræddum söguna og möguleika virkjunarinnar við Árna Hrannar Haraldsson framkvæmdastjóra Orku náttúrunnar.

Hólmfríður María Ragnhildardóttir, Rúnar Róbertsson og Júlía Margrét Einarsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.