Síðdegisútvarpið

Borgarbyggð fær PISA-niðurstöður, umdeildur dómur og sögusagnir í Mílanó

Mennta- og barnamálaráðherra ætlar að veita sveitarfélögum og grunnskólum sem eftir því leita upplýsingar um niðurstöður þeirra í PISA. Þessi ákvörðun var tilkynnt í gær en áður hafði Unnur Brá Konráðsdóttir sveitarstjóri Borgarbyggðar gagnrýnt að smærri sveitarfélög fengju ekki aðgang þessum upplýsingum líkt og sjö stærstu sveitarfélögin, og kærðu ráðuneytið til úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Unnur Brá var á línunni.

Umdeildur dómur féll í Landsrétti í síðustu viku þar sem maður var sýknaður af ákæru um nauðgun. Konan hlaut margvíslega áverka, meðal annars á höfði, hálsi og baki – en maðurinn bar fyrir sig að þau hefðu sammælst um að stunda BDSM-kynlíf. Ákvörðun Landsréttar við að snúa við dóminum hefur vakið hörð viðbrögð og hafa margir fordæmt þessa niðurstöðu, þar á meðal BDSM á Íslandi. Formaður samtakanna, Katrín Íris Sigurðardóttir, kom til okkar.

Óeirðir eru víðar í Evrópu en í Frakklandi. Til að mynda í ítölsku borginni Mílanó en þar hafa líka verið í gangi póstar á samfélagsmiðlum þar sem varað er við yfirvofandi árás á skóla og að erlendir nemendur sem ekki líta út fyrir að vera ítalskir séu í hættu. Sumir skólar sendu nemendur heim í gær vegna þessara óstaðfestu skjáskota. Sóley Dögg Rúnarsdóttir, sem er nýútskrifaður fatahönnuður úr Naba listaháskólanum í Mílanó, var á línunni hjá okkur.

Hólmfríður kíkti um helgina niður í Borgarleikhús og ræddi þar við ungu leikkonurnar Rebeccu Lív Biraghi og Viktoríu Dalitso Þráinsdóttur sem hafa slegið í gegn fyrir frammistöðu sína í leikritinu Svikasögum eftir Maríu Reyndal. Rebecca, sem er fjórtán ára, leikur Nönnu yngri aðalpersónu verksins og Viktoría, sem er þrettán ára, fer með hlutverk Gerðar, vinkonu Nönnu. Við fengum að heyra frá heimsókninni.

Kosningarnar í Bandaríkjunnum nálgast óðum. Repúblikanar og Demókratar keppast nú um hylli kjósenda sinna – en hvað er það sem virkar? Hvernig ná stjórmálamenn best til kjósenda og hvaða aðferðum hafa þeir verið að beita í fjölmiðlum og samfélagsmiðlum? Jón Gunnar Ólafsson, lektor við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, kíkti til okkar en hann er sérfræðingur þegar kemur að miðlun upplýsinga um stjórnmál.

Háskólinn á Akureyri ætlar að opna fyrir nám í kennslu íslensku sem annars máls. Á heimasíðu skólans segir að námið svari vaxandi þörf fyrir sérhæfingu kennara í fjöltyngdu samfélagi. Við hringdum norður í Sigríði Margréti Sigurðardóttur, forseta kennaradeildar HA, og fengum hana til að segja okkur betur frá þessu námi.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Síðdegisútvarpið

Hólmfríður María Ragnhildardóttir, Rúnar Róbertsson og Júlía Margrét Einarsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,