Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga telur ríkið ganga í bága við samkomulag sem ríki og sveitarfélög gerðu sín á milli í mars á síðasta ári um framkvæmd og fjármögnun þjónustu við börn með fjölþættan vanda. Í drögum að nýrri reglugerð hefur ríkið endurskilgreint einhliða þá hópa sem falla undir samkomulagið. Jón Björn Hákonarson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, var á línunni.
Matsferill, notkun spjaldtölva og snjalltækja í skólum, símabann og einkunnir í tölustöfum. Allt eru þetta viðfangsefni sem menntaráð Kópavogsbæjar hefur verið að skoða síðustu vikur og mánuði. Karen Rúnarsdóttir, formaður menntaráðs Kópavogsbæjar, kom til okkar og fór yfir stefnur og áherslur bæjarfélagsins í menntamálum þetta skólaárið.
Undanfarnar vikur hafa margir farþegar lýst yfir óánægju með langar biðraðir í Leifsstöð sérstaklega snemma morguns þegar mikið álag er á brottförum. Sumir segja erfitt að átta sig á hvenær sé raunverulega best að mæta í flug, þar sem annars vegar er mælt með að koma með góðum fyrirvara en hins vegar hafa skapast biðraðir þegar flugstöðin opnar og þjónustan fer af stað. Við fórum yfir stöðuna, álagið og hvað farþegar geta gert til að skipuleggja ferðalag sitt sem best með Guðjóni Helgasyni, upplýsingafulltrúa Isavia.
Í síðustu viku héldu VR, LÍV og Fagfélögin opinn fund um áhrif stýrivaxta á fólk og fyrirtæki. Í tæp fjögur ár hafa stýrivextir verið mjög háir á Íslandi og var rætt á fundinum hvort tímabært að staldra við og velta því upp hvort hávaxtastefnan þjóni tilgangi sínum. Jakob Tryggvasvon formaður Rafiðnaðarsambandsins var á línunni hjá okkur.
Nú er minna en vika í að þjóðin ákveði hvort hún vilji hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þessi spurning vefst fyrir mörgum og það er ekki síður erfitt að ákveða sig ef maður skilur ekki lykilhugtök í umræðunni. Hvað er til að mynda verðtrygging? Gylfi Zoëga hagfræðingur var hér á línunni og svaraði þeirri spurningu.
Við rákumst í dag á áhrifamikið viðtal við Thelmu Lind Karlsdóttur í Morgunblaðinu Thelma hefur glímt við mígreni frá barnæsku og lýsir því hvernig sjúkdómurinn hefur haft djúpstæð áhrif á nám, vinnu og daglegt líf. Á unglingsárum urðu köstin svo alvarleg að hún leitaði reglulega á bráðamóttöku og síðar fékk hún örorkumat vegna afleiðinga veikindanna. Thelma er meðal stofnfélaga nýstofnaðra Mígrenissamtaka Íslands, sem ætlað er að vera rödd fólks með mígreni og stuðla að aukinni fræðslu, skilningi og betri þjónustu. Thelma kom í Síðdegisútvarpið.