Síðdegisútvarpið

Reykholtsmálið, stýrivextir og menningarnótt og tombóla í Grímsnesi

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands tilkynnti í morgun þriðju vaxtahækkunina í röð frá því í mars og standa stýrivextir í 8%. Seðlabankastjóri telur síðustu hækkanir hafa skilað árangri en nefndin spáir því verðbólga hjaðni eftir áramót. Jón Guðni Ómarsson bankastjóri Íslandsbanka kom til okkar og ræddi þessi mál.

Fleiri upptökur úr síma Andra Más Mortensen Birgissonar voru spilaðar í Héraðsdómi Suðurlands í dag þar sem aðalmeðferð Reykholtsmálsins var fram haldið. Allir ákærðir hafa komið fyrir dóm og hefur unnusta Andra Más játað hafa tekið þátt í svipta brotaþolann frelsi. Ragnar Jón Hrólfsson fréttamaður kom til okkar en hann var í Héraðsdómi Suðurlands í dag.

Menningarnótt í Reykjavík fer fram á laugardaginn er vænta hún verði sérstaklega glæsileg í ár því Reykjavíkurborg fagnar 240 ára afmæli. Við fórum yfir það helsta með þeim Björgu Jónsdóttur og Aðalheiði Sveinsdóttur verkefnastýrum.

Alþingiskonan Sigríður Á. Andersen nýtti sumarfríið heldur betur vel. Hún keppti á Evrópumeistaramótinu í bekkpressu í Litháen, vann til bronsverðlauna og setti nýtt Íslandsmet í sínum flokki. Sigríður keppti í -63 kg flokki öldunga 2. Hún lagði einnig sitt af mörkum til íslenska liðið hafnaði í þriðja sæti í liðakeppni öldunga 2. Sigríður Á. Andersen var gestur Síðdegisútvarpsins í dag.

Nýr íslenskur lestrarleikur, LESA, hefur verið formlega kynntur en markmiðið er hjálpa yngstu hópunum góðum tökum á lestri með því sameina sögur, lesskilning og leikjafræði. Börnin nýja sögu á hverjum degi, vinna sér inn verðlaun og kynnast um leið íslenskri menningu og hefðum. Á bak við verkefnið stendur lítið nýsköpunarteymi með stóra drauma um efla lestur barna um allt land. Til segja okkur nánar frá þessu spennandi verkefni komu þeir til okkar þeir Arnar Hinriksson og Birgir Hrafn Birgisson

Við hringdum austur í Grímsnes þar sem verið er leggja lokahönd á undirbúning fyrir Grímsævintýrin sem fara fram á Borg um helgina. Þar verður fjölbreytt dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Ein þekktasta hefð í sveitinni er Tombólan sem hefur verið haldin í 100 ár hvorki meira minna. Laufey Guðmundsdóttir hjá Kvenfélagi Grímsneshrepps var á línunni.

Birt

19. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,